Borðin svignuðu undan kræsingum á jólahlaðborði á Gran Canaria
Mán - 15. Desember 2025 - 16:00 — Kristín Magnea Sigurjónsdóttir
Í gær, sunnudaginn 14. desember var haldið glæsilegt jólahlaðborð á Gran Canaria. Það mættu á annað hundrað manns á Why Not Lago til eiga góða stund saman og njóta kræsinga.
Veisluborðið svignaði undan kræsingum og sá matreiðslumeistarinn Kristján Örn Frederiksen um eldamennsku og framsetningu á lostætinu ásamt úrvals starfsfólki úr eldhúsi.
Guðbjörg Bjarnadóttir rekur veitingahúsið Why Not Lago með miklum myndarbrag og skipulagði hún viðburðinn ásamt því að sjá um söng á ballinu eftir borðhald. Um tónlist sá Pétur Hreinsson sem þekktur er fyrir að hafa spilað með hljómsveitinni Hafrót.
Eins og oft vill verða þá eru Siglfirðingar allstaðar, í myndum má sjá nokkra og voru fagnaðarfundir með þeim.

Myndir: Trölli.is
