Trölli.is logo
sdfgsdfg
mynd pixabayMynd - pixabay.com

Fjöldi starfandi einstaklinga stóð í stað milli ára

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 13. mar. 2026 06:55
Alls voru um 216.200 einstaklingar starfandi á íslenskum vinnumarkaði í janúar 2026 samkvæmt skrám sem er svipaður fjöldi starfandi og var í janúar 2025. Fjöldi starfandi kvenna í janúar var um 101.700 og fjöldi starfandi karla um 114.500.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.
Mynd: pixabay