Trölli.is logo
sdfgsdfg
ÓveðurMynd - Trölli.is, KMS

Siglufjarðarvegur ófær – Unnið að mokstri

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 13. mar. 2026 09:20
Siglufjarðarvegur er ófær en unnið er að mokstri.
Snjóþekja er á Öxnadalsheiði og víðar en hálka og skafrenningur er á helstu leiðum. Þungfært er á Þverárfjalli en mokstur er þar í fullum gangi, ófært er í Almenningum. Þungfært er á Siglufjarðarveginum og í kringum Sauðárkrók.
Holtavörðuheiði er lokuð og koma næstu upplýsingar um kl 11:00, vont færi og margir bílar fastir. Bent er á hjáleið um Laxárdalsheiði.
Sjá nánar á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Skjáskot af vefsíðu Vegagerðarinnar