Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: ASÍ

Hvar er ódýrustu páskaeggin að finna?

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 27. mar. 2026 07:03
Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Þar hækka þau jafnframt einna minnst í verði milli ára.
Verð á páskaeggjum merktum Bónus hækkar mest milli ára og líka ef borið er saman við árið 2024. Gjarnan geta neytendur gert betri kaup í stærri páskaeggjum sem eru iðulega með lægsta kílóverðið. Í þessu tilfelli var lægsta kílóverðið ekki að finna á stóru páskaeggi, heldur á Okkar eggi númer 4, 250 gr.  í Prís. 
Verð á páskaeggjum í Prís og Fjarðarkaupum hækkaði að meðaltali um minna en 1% milli ára, en hækkaði um 9% í Bónus, Krónunni og Nettó og um 10% í Hagkaup.  
Mesta úrvalið af páskaeggjum var að finna í vefverslun Krónunnar, þar sem mátti finna 53 páskaegg. Í Kjörbúðinni og Extra var úrvalið minnst, eða 7 páskaegg í hvorri verslun þegar verðlagseftirlitið for á vettvang.
Í Krambúðinni fundust 12 páskaegg, 41 í Prís, 43 í Fjarðarkaupum, 47 í Bónus, 48 í Nettó og 53 í Hagkaup. 
Sjá nánar á vefsíðu ASÍ.
Mynd: af vefsíðu ASÍ