Íbúafundur í Tjarnarborg kl. 17:00
Þri - 9. Desember 2025 - 13:23 — Kristín Magnea Sigurjónsdóttir
Íbúafundur vegna fjárhagsáætlunar 2026 verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg í dag, þriðjudaginn 9. desember n.k. kl 17:00.
Fyrirkomulag fundarins verður með þeim hætti að bæjarstjóri kynnir helstu atriði fjárhagsáætlunar 2026 og fyrirhugaðar framkvæmdir. Í kjölfarið gefst fundargestum kostur á að taka þátt í umræðum og leggja fram fyrirspurnir.
