Trölli.is logo
sdfgsdfg

Umsagnir vegna breytinga á aðalskipulagi Fjallabyggðar – Leirutanga

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fim - 26. mar. 2026 07:35
Fjallabyggð kynnir áform um breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga. 
Markmið endurskoðunar er að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans.
Eldra skipulag byggði á því að steypustöð austast á tanganum yrði flutt í náinni framtíð. Vegna breyttra forsenda þarf endurskoðað skipulag að gera ráð fyrir áframhaldandi starfsemi steypustöðvar á svæðinu með viðeigandi skilmálum svo það falli sem best að aðliggjandi landnotkun.
Jafnframt er lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist þannig að ólík starfsemi geti samræmst og styrkt heildarmynd og notagildi svæðisins. Breyting á aðalskipulagi og endurskoðun deiliskipulags Leirutanga verður auglýst samhliða.