Trölli.is logo
sdfgsdfg

Egg, Beikon og Bakaðar Baunir í beinni á FM Trölla!

Oskar Brown skrifar — fim - 19. mar. 2026 17:00
Þátturinn Egg, Beikon og Bakaðar Baunir verður í beinni útsendingu frá Stúdíó 7 á Englandi á morgun, föstudaginn 20. mars, frá klukkan 8 til 10 hér á FM Trölla.
Sem fyrr mun Oskar spila frábæra tónlist úr öllum áttum og kíkja á helgarveðrið. Hann skoðar líka forsíður íslensku og bresku blaðanna, býður hlustendum að taka þátt í morgunleikfimi, og segir sögur af fólki utan úr heimi.
Endilega stillið á FM Trölla á föstudögum frá klukkan 8 til 10, þið sjáið ekki eftir því.
FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, á Hvammstanga og nágrenni.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com
Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.