Páska-paramót í blaki haldið á Siglufirði föstudaginn langa
Smári skrifar — fim - 19. mar. 2026 11:57
Páskaandinn mun svífa yfir Siglufirði þegar blakfélagið stendur fyrir svokölluðu páska-paramóti föstudaginn langa, 3. apríl. Mótið fer fram í íþróttahúsinu á Siglufirði og er markmiðið að bjóða upp á létta og skemmtilega stund yfir páskana.
Mæting er klukkan 15:30 og dagskrá stendur til 17:30 og þátttökugjald er 2.500 krónur á mann. Leikið verður í pörum þar sem skipað er í lið með fyrirkomulaginu kona og kona eða karl og kona.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið bf.blak@gmail.com eða með skilaboðum á Messenger til Ásu Guðrúnar.
Mótið er styrkt af Segli 67 og Sigló Hóteli og er öllum áhugasömum bent á að nýta tækifærið til að taka þátt í léttu og skemmtilegu móti í góðum félagsskap á sjálfum föstudeginum langa.
Mynd: Facebook / Blakfélag Fjallabyggðar, tengist efni fréttarinnar óbeint.
