Glimrandi skvísupopp – Sjana Rut
Gunnar Smári Helgason skrifar — sun - 22. mar. 2026 13:20
Rauðhærða valkyrjan Sjana Rut er mætt aftur með nýtt lag sem ber heitið „Burn The Matches“.
Lagið er komið í spilun á FM Trölla.
„Burn The Matches“ er glitrandi danspopp með skýrum boðskap: að halda áfram, standa með sjálfum sér og láta ekki vitleysu annarra slá sig út af laginu. Lagið sameinar léttan og grípandi hljóm við jákvæða orku og sjálfstraust.
Sjana Rut hefur á undanförnum misserum sent frá sér röð popplaga og fest sig í sessi sem litrík og lifandi popprödd. Margir þekkja hana úr The Voice Iceland, auk fjölmargra annarra tónlistarverkefna.
Með Burn The Matches heldur hún áfram á sömu braut – hreint, heiðarlegt og dansvænt popp með krafti og karakter.
Upplýsingar:
- Titill: Burn The Matches
- Flytjandi: Sjana Rut
- Höfundur lags og texta: Sjana Rut
- Tegund: Popp / danspopp / danstónlist
Lagið er fáanlegt á helstu streymisveitum og komið í spilun á FM Trölla.
