Trölli.is logo
sdfgsdfg

Gildran með stórtónleika í Hofi í kvöld

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — lau - 21. mar. 2026 13:59
Hin magnaða og margrómaða hljómsveit Gildran heldur stórtónleika í Hofi Akureyri laugardaginn 21. mars næstkomandi í tilefni af 40 ára afmæli sveitarinnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.
Á tónleikunum ætla þeir félagar að fara yfir ferilinn og flytja mörg þekktustu lög sín, meðal annars „Mærin“„Andvökunætur“ og „Vorkvöld í Reykjavík“, auk annarra slagara sem hafa fylgt sveitinni í gegnum árin.
Margir sem þekkja til segja að Gildran hafi sjaldan verið betri en nú, og að tónleikar sveitarinnar séu einstök upplifun fyrir tónlistarunnendur.