Trölli.is logo
sdfgsdfg
Húðflúr

Starfleyfisskyldu létt af 16 flokkum atvinnurekstrar

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — lau - 21. mar. 2026 06:55
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar, með breytingum á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022 sem tekið hefur gildi. Þá hefur ráðherra lagt fram frumvarp um að auglýsingaskylda verði afnumin vegna 104 flokka atvinnustarfsemi.
Reglugerðarbreytingin felur í sér að einvörðungu er gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar, í stað starfsleyfisskyldu áður. Meðal þeirra 16 flokka atvinnurekstrar sem nú teljast skráningaskyldir eru dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði.
Skráning felur í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu og hefur Umhverfis- og orkustofnun gefið út uppfærð samræmd starfsleyfisskilyrði. Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma. Sé starfsemi hins vegar bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegur starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þarf að sækja um starfsleyfi.
Enn frekari einföldun er í farvatninu að því er varðar starfsleyfi sem veitt eru samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í frumvarpi um breytt fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits, sem ráðherra hefur farið með fyrir ríkisstjórn, er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi svo fremi sem starfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Í því felst að skilyrði um fjögurra vikna auglýsingu og umsagnatíma áður en starfsleyfi er veitt fellur brott. Mun þetta t.a.m. gilda um gististaði, skólahúsnæði, verkstæði, baðstaði, líkamsræktarstöðvar og framleiðslu af ýmsu tagi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
„Einföldun regluverks heldur áfram af fullum þunga. Nú erum við búin að létta starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnustarfsemi, en það sem meira er: ég var að leggja fyrir Alþingi frumvarp sem felur í sér afnám auglýsingaskyldu vegna 104 flokka atvinnustarfsemi. Með lagabreytingunni mun ekki lengur þurfa auglýsingu og margra vikna umsagnatíma svo að starfsemi geti hafist. Þetta mun t.a.m. gilda um gististaði, skólahúsnæði, verkstæði, brugghús, baðstaði, líkamsræktarstöðvar, framleiðslu af ýmsu tagi, leiksvæði, dvalarheimili, íþróttahús og margt margt fleira. Með þessu erum við ekki að slaka á kröfum um heilbrigði og öryggi heldur að eyða óþarfa töfum og skapa sveigjanlegra umhverfi fyrir rekstraraðila, hvort sem um er að ræða einstaklinga sem eru að hefja nýjan rekstur eða sveitarfélag sem er að koma nýju skólahúsnæði í gagnið.“