Trölli.is logo
sdfgsdfg
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir að lokinni keppni í Marseille.

Marlís á stóran þátt í frábærum árangri Snædísar

Smári skrifar — fös - 20. mar. 2026 17:36
Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir var í lykilhlutverki með Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur þegar íslenska liðið tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or eftir krefjandi keppni í Marseille.  Alls tóku 20 þjóðir þátt í undankeppninni sem stóð yfir í tvo daga, og tíu þeirra tryggðu sér sæti áfram.
Þær fögnuðu þar glæsilegum árangri, en Ísland hafnaði í 10. sæti og verður meðal þeirra þjóða sem keppa til úrslita í Lyon í Frakklandi, 21. til 25. janúar 2027 á Sirha Lyon-sýningunni, þar sem 24 þjóðir munu etja kappi.  Bocuse d’Or er ein virtasta og þekktasta einstaklingskeppni í matreiðslu í heimi, oft kölluð „Ólympíuleikar matreiðslunnar“.
Fyrir áhugasama er hægt að lesa nánar um keppnina með því að smella hér, auk þess sem finna má fréttayfirlit um Bocuse d’Or hér á vefnum veitingageirinn.is.

Tengt efni:

Marlís Jóna frá Siglufirði í lykilhlutverki með Snædísi í Bocuse d’Or teyminu – Viðtal