Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: Gunnar Smári

Slæmt veður á Kanarí – Karnivali frestað og skólum lokað

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 20. mar. 2026 16:00
Neyðarmiðstöð Kanaríeyja tilkynnti á samfélagsmiðlum í morgun að hingað til hafi borist yfir 300 tilkynningar um atvik tengd óveðrinu.
Um 200 þeirra eru í vesturhéraðinu Santa Cruz de Tenerife (Tenerife, La Gomera, La Palma og El Hierro) og um 100 í austurhéraðinu Las Palmas (Gran Canaria, Fuerteventura, Lanzarote og La Graciosa).
Engin atvikanna teljast alvarleg, að því er fram kemur á vefmiðlinum canariajournalen.no.
Flest þeirra snúa að skriðuföllum og greinum sem hafa fallið á vegi og götur, nokkrum skammvinnum rafmagnstruflunum og flóðum. Einnig hafa verið tafir á flugi, almennum samgöngum og skólum lokað.
Í þessu veðri sést varla hræða á götum úti
Horft niður gljúfrið, Barranco de la Angostura þar sem hellisbúar dvelja gjarnan. En ekki þessa dagana vegna skriðuhættu.
Það er allt óvanalega grænt vegna rigninga
Barranco de la Angostura
Horft til sjávar og bæjarins Vecindario
Óveðrið heldur áfram og viðvaranir eru í gildi í dag, laugardag og sunnudag.
Í dag, fram til klukkan átta í morgun, hafa vindhviður náð fellibylsstyrk í Agaete á Gran Canaria, Izaña á Tenerife og Vallehermoso á La Gomera.
Rigning hefur víða verið mjög mikil. Í Valverde á El Hierro mældist úrkoman í gær 79,6 millimetrar og í San Mateo á Gran Canaria mældust 65,4 millimetrar í gær og 55 millimetrar til klukkan sjö í morgun.
Fjallasvæði í San Bartolomé de Tirajana á suðurhluta Gran Canaria hafa einnig fengið vel yfir 40 millimetra úrkomu fram til morguns.
Vegagerðin á Gran Canaria greindi frá því á X í morgun að allmargir vegir séu lokaðir vegna skriðufalla.

Aðalskrúðgöngu karnivalsins í Maspalomas hefur verið frestað vegna stormsins Therese.
Stóra skrúðgangan, sem upphaflega var á dagskrá á morgun, laugardaginn 21. mars, fer fram næstu helgi, laugardaginn 28. mars.
Sveitarfélagið San Bartolomé de Tirajana staðfesti að ákvörðunin hafi verið tekin í samræmi við öryggisviðvaranir sem gefnar voru út af stjórnvöldum Kanaríeyja. Einnig voru virkjaðar staðbundnar viðbragðsáætlanir til að tryggja öryggi íbúa, gesta og þátttakenda í viðburðinum.
Myndir: Gunnar Smári Helgason