Mikil aðsókn að söngstund Önnu Leu og Bróa á Gran Canaria
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 20. mar. 2026 13:35
Reglulegar samkomur Íslendinga við svokallaða Íslendingabúð á Ensku ströndinni á Gran Canaria hafa vakið athygli síðustu misseri. Blaðamaður Trölla.is kynnti sér málið og kom í ljós að þar standa hjónin Anna Lea og Brói fyrir vinsælli söngstund sem dregur að sér fjölda landsmanna.
Anna Lea og Brói hófu störf sem fararstjórar hjá Heimsferðum haustið 2005. Þá var þegar kominn vísir að þeirri söngstund sem síðar varð fastur liður í dagskrá þeirra, þó hún hafi í upphafi verið hluti af stærri skemmtunum og ferðum sem Sigurður R. Guðmundsson, faðir Bróa, stóð fyrir. Með tímanum þróaðist þetta í reglulega vikulega söngstund sem oft fór fram á föstudögum eða sunnudögum. Auk þess stóðu þau fyrir fjölbreyttri dagskrá, meðal annars minigolf, félagsvist, heilsurækt og skoðunarferðum.
Í gegnum árin hafa fjölmargir tónlistarmenn tekið þátt í söngstundunum, þar á meðal harmonikkuleikararnir Örvar Kristjánsson, Grétar Örvarsson, Hilmar Hjartarson, Erling Helgason, Sigurður Hannesson og Númi Adólfsson, auk gítarleikarans Sigurðar Vilbergs Dagbjartssonar og fleiri sem komu að verkefninu þegar færi gafst.
Eftir heimsfaraldur COVID-19 árið 2021 tóku þau að sér þjónustu við farþega frá fleiri ferðaskrifstofum, þar á meðal Úrvali Útsýn, Sumarferðum og Plúsferðum. Vorið 2023 létu þau af föstum störfum hjá ferðaskrifstofunum, en hafa áfram tekið að sér einstök verkefni fyrir Heimsferðir og Aventura.
Söngstundirnar hafa alla tíð verið fastur liður, þó umfang þeirra hafi breyst með tímanum. Um tíma fóru þær fram vikulega, en síðustu ár hafa þær verið haldnar sjaldnar, fyrst tvisvar í mánuði og nú einu sinni í mánuði. Þátttaka hefur þó áfram verið góð og áhugi mikill.
Blaðamaður Trölla.is var viðstaddur síðustu söngstund vetrarins þann 17. mars. Þar var góð stemning og tóku gestir vel undir í söng, meðal annars í laginu Ferðalok, þar sem margir risu úr sætum og sungu af innlifun.
Við það tilefni sendu Anna Lea og Brói gestum sínum kveðju og þökkuðu fyrir samveruna yfir veturinn, með ósk um að hittast á ný að hausti.















Myndir: Anna Lea Björnsdóttir
Vídeó: Andri Hrannar einarsson
Vídeó: Andri Hrannar einarsson
