Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: af facebooksíðu Sjúkrahússins á Akureyri

Skurðlækningadeild SAk færðar göngugrindur

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 20. mar. 2026 09:15
Hollvinir SAk hafa fært skurðlækningadeild þrjár göngugrindur að gjöf. „Göngugrindurnar nýtast sjúklingum mjög vel og fjölmargir sem þurfa skiljanlega að nota þær eftir aðgerð. Þannig að gjöfin gagnast svo sannarlega vel og erum við Hollvinum þakklát fyrir þeirra stuðning.“ Segir Bryndís María Davíðsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar.
„Það er venju samkvæmt gleðilegt að geta fært deildum Sjúkrahússins á Akureyri búnað sem gagnast sjúklingum.“ Segir Jóhannes G. Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina.
Við þetta má bæta að á skurðlækningadeild hefur verið tekin í notkun ný dagstofa fyrir sjúklinga. „Það er ákaflega gott að geta boðið sjúklingum upp á rými til að setjast niður með aðstandendum eða nýta með þeim hætti sem hentar, þegar fólk vill vera utan sjúkrarýma.“ Segir Bryndís María Davíðsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar.
Dagstofa fyrir sjúklinga
Bryndís María Davíðsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar og Dagbjört Sigurpálsdóttir, sjúkraliði á skurðlækningadeild
Mynd: af facebooksíðu Sjúkrahússins á Akureyri