Boðið í leikhúsferð á Með vífið í lúkunum í Tjarnarborg
Smári skrifar — fös - 20. mar. 2026 12:02
Félög eldri borgara í Fjallabyggð bjóða félagsmönnum sínum í leikhús á sýninguna Með vífið í lúkunum, sem verður sýnd í Tjarnarborg sunnudaginn 29. mars klukkan 15:00.
Tekið er fram í tilkynningu að skráðir félagsmenn eiga rétt á einum miða hver á sýninguna. Þeir sem ekki eru þegar skráðir í félögin fyrir 26. mars geta hins vegar skráð sig og þannig tryggt sér aðgang, en allir sem náð hafa 60 ára aldri eru velkomnir í félög eldri borgara í Fjallabyggð.
Skráning á sýninguna og nýskráningar fara fram hjá tengiliðum félaganna. Í Ólafsfirði er það Rósa í síma 692 3202 og í Siglufirði eru það Pálína í síma 862 6385 og Bibba í síma 862 6165.
Frumkvæðið er tekið af stjórnum félaga eldri borgara í Fjallabyggð, sem með þessu vilja gefa félagsmönnum sínum tækifæri til að njóta menningar og samveru.
Tengt efni:
Leikfélag Fjallabyggðar frumsýnir Með vífið í lúkunum 27. mars
