Starfshópur um nýtt húsnæðislánakerfi
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 20. mar. 2026 06:55
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp um nýtt húsnæðislánakerfi. Hópurinn hittist á sínum fyrsta fundi í gær.
„Skipun hópsins er í samræmi við áherslur stjórnvalda í húsnæðismálum. Nýlegar breytingar á lánamarkaði síðastliðna mánuði í tengslum við vaxtadómana svokölluðu hafa undirstrikað nauðsyn þess að greina hvort koma megi á sanngjarnara og gagnsærra húsnæðislánakerfi hér á landi til lengri tíma litið,“ segir Ragnar Þór.
„Um leið er brýnt að greina til skemmri tíma hvort gera þurfi breytingar á núverandi lagaumgjörð fasteignalána til neytenda til að tryggja neytendavernd. Þetta eru mikilvæg verkefni sem stjórnvöld vilja ná vandlega utan um.“

Verkefni starfshópsins eru:
- Að kortleggja nýlegar breytingar á lánaframboði og áhrif þeirra á neytendur – og greina í kjölfarið hvort gera þurfi breytingar á löggjöf um fasteignalán til neytenda. Þetta er gert til að stuðla að því að staða lántaka sé ekki lakari en hún var fyrir áðurnefnda vaxtadóma.
- Að greina hvort og þá hvernig taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með það fyrir augum að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir neytendur. Erlendar fyrirmyndir verða hafðar til hliðsjónar og rýnt í kosti og galla annarra húsnæðislánakerfa, einkum í nágrannaríkjunum.
Formaður starfshópsins er Marinó G. Njálsson og í hópnum eiga sæti fulltrúar frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ASÍ, BHM, BSRB, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hagsmunasamtökum heimilanna, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendasamtökunum, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Seðlabanka Íslands.
Með hópnum starfar sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
Með hópnum starfar sérfræðingur á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.