Holtavörðuheiðin lokuð og víða vonskuveður
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 20. mar. 2026 15:08
Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á því að vonskuveður er víða í umdæminu, stórhríð er á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Þá gengur á með dimmum éljum m.a. á Blönduósi og þar í kring.
Holtavörðuheiðin er lokuð, og skv. Vegagerðinni er búist við að hún verði þungfær takist á annað borð að opna hana í dag.
Gul veðurviðvörun er í gildi til kl. 08.00 í fyrramálið (21. mars). Skv. Veðurstofu Íslands er spáð suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum og slæmu skyggni. Líkur eru á versnandi færð, einkum á fjallvegum. Gert er ráð fyrir varasömu ferðaveðri.
Sjá upplýsingar um færð og veður á Umferðin.is
