Fróðlegt erindi á fundi Kiwanisklúbbsins Skjaldar í Fjallabyggð
Smári skrifar — lau - 21. mar. 2026 11:26
Almennur fundur fór fram hjá Kiwanisklúbbnum Skildi í Fjallabyggð í gærkvöld, 20. mars, þar sem áhugavert og mikilvægt erindi var á dagskrá.
Gestur fundarins var Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, sem nýverið stofnaði bókaútgáfuna Mannkennd. Útgáfan leggur áherslu á að þýða og gefa út barnabækur sem höfða sérstaklega til barna með frávik eða fötlun, sem og fjölskyldna þeirra. Í erindi sínu fór Ingibjörg yfir tilurð útgáfunnar og þá skýru þörf sem er fyrir slíkt efni hér á landi, enda skortur á bókum sem endurspegla reynslu og veruleika þessara barna.
Fram kom að fyrsta bók útgáfunnar sé væntanleg í haust. Hún er þýdd úr þýsku og er ætluð börnum og foreldrum barna sem greind hafa verið með einhverfu. Markmið bókarinnar er að auka skilning, stuðla að betri umræðu og veita bæði börnum og aðstandendum stuðning í daglegu lífi.
Að sögn fundargesta var erindið bæði fróðlegt og áhrifamikið, og þökkuðu félagar í Kiwanisklúbbnum Skildi Ingibjörgu kærlega fyrir komuna og innsýnina í þetta mikilvæga verkefni.
Meðfylgjandi myndir tók Albert Gunnlaugsson, ritstjóri Tunnunnar, og eru þær birtar með góðfúslegu leyfi hans.
