Trölli.is logo
sdfgsdfg
Meðfylgjandi myndir voru teknar af Ólöfu Kristínu, Guðmundi Gauta Sveinssyni og Hrólfi Baldurssyni

Myndir og myndbönd: Feðrafélagið bauð upp á dýrindis kræsingar við lok kirkjuskólans

Smári skrifar — mán - 23. mar. 2026 14:39
Barnastarfi Siglufjarðarkirkju þennan veturinn lauk í gær. Nokkrir feður kirkjuskólabarna sáu um veitingarnar, líkt og í fyrra um svipað leyti, og var margt gómgætið á boðstólum, s.s. amerískar pönnukökur, eggja- og beikonmöffins, laxasalat, pylsupasta, tómatkonfetti og fleira, ásamt tilheyrandi drykkjarföngum. Um 90 manns, á öllum aldri, mættu og nutu herlegheitanna og samfélagsins. Undir lokin voru öll börnin svo leyst út með páskaeggjum.
Myndir og myndbönd: Feðrafélagið bauð upp á dýrindis kræsingar við lok kirkjuskólans
Barnastarfið hófst í október í fyrra og hafa samverurnar verið hátt í 20.  Er þetta 23. árið sem það hefur verið með þessu sniði, að byrja niðri í kirkju við söng og talað mál, kl. 11.15, og enda uppi í safnaðarheimili, á 3. hæð, þar sem ýmsar hollar veitingar hafa jafnan beðið þeirra sem komið hafa, s.s. ávextir, grænmeti, hrökkbrauð og ostar, og svo eitthvað gott til að væta kverkarnar með, áður en föndur hefst.
Brönsinn, sem hér í upphafi var lýst, tilheyrir því einungis sjálfri uppskeruhátíðinni.
Hver samvera kirkjuskólans er einn og hálfur klukkutími í senn, en undirbúningur og tiltekt bætast svo við. Umsjónarmenn hafa, ásamt Sigurði Ægissyni sóknarpresti, verið öll þessi ár Vilborg Rut Viðarsdóttir og sonur hennar, Viðar Aðalsteinsson, auk þess sem Sigurbjörg Gunnólfsdóttir var lengi í hópnum, og nokkrir aðrir skemur, og undanfarinn áratug eða svo hafa fermingarbörn að auki aðstoðað þar dyggilega, jafnt niðri sem uppi, með bros á vörum, mætt kl. 10.00 og verið allt þar til búið er að ganga frá og þrífa, sem oftar en ekki er fyrr en kl. 13.30 eða jafnvel kl. 14.00, ef kirkjuskólabörnin hafa verið að mála.
En nú eru páskar innan seilingar og eftir það vorið, með fermingum, og eftir það sumarleyfi, en næsta haust verður svo þráðurinn tekinn upp að nýju. Nokkrum mánuðum eftir það verður svo aftur hóað í Feðrafélag kirkjuskólans og það beðið um að koma og töfra fram eitthvað svipað og gladdi munna og belgi þar í efra í hádeginu 22. mars 2026, á Boðunardegi Maríu.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af Ólöfu Kristínu, Guðmundi Gauta Sveinssyni og Hrólfi Baldurssyni, en Hrólfur tók einnig meðfylgjandi myndbönd.

Myndband 1

Myndband 2

Myndband 3