Umsögn Árna Rúnars Örvarssonar vegna breytinga á aðalskipulagi Fjallabyggðar – Leirutanga
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — fös - 27. mar. 2026 11:45
Umsögn Árna Rúnars Örvarssonar vegna Breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og endurskoðun á deiliskipulagi Leirutanga.
F.h. Icelandic Eider ehf. bendir undirritaður á að á Leirutanga er eitt stærsta æðarvarp innan bæjarmarka á landinu. Fjallabyggð hefur haft umtalsverðar tekjur af varpinu undanfarin ár, án þess að hafa þurft að leggja til kostnað vegna reksturs þess. Samkvæmt samningi sér verktaki um alla umhirðu varpsins, verndun þess og dúntekju á svæðinu.
Á núverandi afstöðumynd deiliskipulagsins frá 2016 er varpland fugla einfaldlega ranglega merkt. Sú framsetning ber vott um verulega vanþekkingu á aðstæðum á svæðinu. Stærsti hluti fuglavarps á Leirutanga, þar á meðal lang stærstur hluti æðarvarps, er staðsettur allra syðst og suðaustast á svæðinu. Ef ekki verður brugðist við og afmörkun leiðrétt er veruleg hætta á að varpið dragist saman um tugi prósenta á einu til tveimur árum eða leggist jafnvel af.
Jafnframt skal undirstrikað að hér er ekki eingöngu um mikilvægt búsvæði fugla að ræða heldur einnig tekjulind fyrir sveitarfélagið. Varp þetta hefur verið byggt upp og hlúð að í meira en aldarfjórðung á svæði sem fáir hafa haft áhuga á að sinna.
Til að tryggja áframhaldandi viðgang æðarvarpsins þarf svæðið að njóta verndar á varptíma æðarfugls, í samræmi við lög nr. 252/1996 um friðun æðarvarpa, þ.e. frá 15. apríl til 14. júlí ár hvert. Eðlilegasta og ábyrgasta leiðin væri að afmarka svæðið formlega sem friðað æðarvarp, ef sveitarfélagið hyggst raunverulega standa vörð um náttúruvernd og tryggja áframhaldandi griðland fugla á Leirutanga.
Árni Rúnar Örvarsson
Mynd: Smári
