Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: HSNMynd - hsn.is

21 læknir á æfingu í bráðainngripum á Siglufirði

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mið - 25. mar. 2026 09:45
Æfing í bráðainngripum fyrir lækna í dreifbýli fór fram á Siglufirði um síðustu helgi undir handleiðslu bráðalækna frá Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Markmið æfingarinnar var að efla viðbragðsgetu lækna við krefjandi aðstæður þar sem veður, færð og langar vegalengdir geta torveldað aðgengi að sjúkrahúsum. Í slíkum aðstæðum skiptir skjótt og öruggt viðbragð sköpum.
Námskeiðið var ætlað sérfræðingum í heimilislækningum á starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands utan Akureyrar, auk sérnámslækna. Alls tóku 21 læknir þátt og nýttu helgina til að efla þekkingu sína og æfa viðbrögð þar sem hver mínúta getur haft úrslitaáhrif.
Á næstu vikum verða haldnar frekari æfingar á vettvangi á Dalvík, Siglufirði, Sauðárkróki, Blönduósi og Húsavík.
Þar munu sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðingar og aðrir viðbragðsaðilar taka þátt í æfingunum.
Myndir og heimild: HSN