Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: úr safni TröllaMynd - trolli.is/KMS

Spáð vonskuveðri um allt land

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — þri - 24. mar. 2026 15:35
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir allt landið á morgun, fimmtudaginn 25. mars vegna hvassrar suðaustanhríðar sem gengur yfir landið. Viðvörunin tekur gildi klukkan 05:00 í fyrramálið og gildir til klukkan 18:00.
Samkvæmt spám má búast við suðaustan vindi, 15 til 23 metrum á sekúndu, ásamt snjókomu og hríð, fyrst suðvestanlands. Um hádegisbil er gert ráð fyrir að vindur snúist til suðvesturs og verði 8 til 13 metrar á sekúndu með skúrum suðvestantil.
Gert er ráð fyrir talsverðri eða mikilli snjókomu og skafrenningi með lélegu skyggni. Líklegt er að samgöngur raskist, vegir lokist og tafir verði á flugi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast vel með veðurspám.
Síðar um daginn er búist við suðaustan hvassviðri, 18 til 28 metrum á sekúndu, með snjókomu eða slyddu, einkum suðvestan- og vestanlands. Hlýnar í veðri en vindur og úrkoma ganga niður sunnan- og vestanlands eftir hádegi. Á sama tíma má búast við áframhaldandi hvassviðri og snjókomu á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld.
Á föstudag er spáð norðanátt, 13 til 20 metrum á sekúndu, á vestanverðu landinu með snjókomu, en hægari vindi og minni úrkomu austantil fram undir kvöld. Hiti verður nálægt frostmarki.
Á laugardag dregur úr norðvestanátt, úrkomu léttir og kólnar, en síðdegis gengur í vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands með snjókomu eða slyddu.
Á sunnudag er útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum, en talsverða snjókomu norðan- og austanlands, einkum fyrri hluta dags. Hiti verður víðast nálægt frostmarki, en mildara verður með suðurströndinni.
Sjá nánar á vefsíðu Veðurstofu Íslands
Sjá nánar um færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar