Snjóflóð lokar Siglufjarðarvegi – Björgunarsveitir aðstoða vegfarendur
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mán - 23. mar. 2026 22:22
Siglufjarðarvegur er lokaður um Almenninga nærri Strákagöngum eftir að snjóflóð féll á svæðinu skömmu eftir kvöldmat.
Nokkrir bílar urðu innlyksa vegna flóðsins og eru björgunarsveitir að störfum við að aðstoða vegfarendur og flytja þá til byggða.
Vonsku veður er á svæðinu og Lögreglan á Norðurlandi eystra biður vegfarendur um að fresta ferðalögum og vera ekkert á ferðinni á þar til veður gengur niður.
