Skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar hefur sagt upp störfum
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mið - 25. mar. 2026 06:05
Ása Björk Stefánsdóttir skólastjóri Grunnskóla Fjallabyggðar, hefur sagt upp störfum frá og með 1.apríl 2026.
Hún mun starfa út núverandi skólaár.
Nýr grunnskóli í Fjallabyggð tók til starfa 1. ágúst 2010 og leysti af hólmi Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar.
Við skólann eru tvær starfsstöðvar:
Á Siglufirði er 1. – 5. bekkur og þar er nemendafjöldi rúmlega 100.
Á Ólafsfirði er 6. – 10. bekkur og þar er nemendafjöldi rúmlega 100.
Stjórnendateymi samanstendur af skólastjóra og tveimur deildastjórum:
Skólastýra er Ása Björk Stefánsdóttir.
Deildarstjóri á starfsstöð við Tjarnarstíg á Ólafsfirði er Birgitta Þorsteinsdóttir.
Deildarstjóri á starfsstöð við Norðurgötu á Siglufirði er Sigríður Karlsdóttir.

Mynd: Smári