Trölli.is logo
sdfgsdfg
Á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra var birt mynd af vettvangi, tekin af aðila á staðnum.

Leit að manni eftir snjóflóð við Ólafsfjörð gekk vel og lauk farsællega

Smári skrifar — lau - 28. mar. 2026 17:18
Snjóflóð féll í Skeggjabrekkudal í Ólafsfirði fyrr í dag og hófst leit án tafar eftir að grunur vaknaði um að einn úr hópi sem staddur var á svæðinu hefði lent í flóðinu.  Nú hafa þó allir fundist óslasaðir.
Björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu voru kallaðar út með hæsta forgangi og fór umfangsmikil leit strax af stað. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa Vísis greindi frá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð út til aðstoðar, en hún komst ekki langt vegna aðstæðna.
Í samtali við Vísi staðfesti Hermann Karlsson, aðgerðarstjóri lögreglu, að allir hefðu fundist heilir á húfi og enginn slasast. Leitinni hefur því verið hætt.
Hér að neðan fylgir fréttatilkynning um málið frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.