Vinsælustu mannanöfnin á Íslandi 2025
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — lau - 28. mar. 2026 07:05
Birnir og Matthías voru vinsælustu fyrstu eiginnöfn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 33 drengjum var gefið nafnið Birnir og 29 drengjum nafnið Matthías. Næst vinsælustu nöfnin meðal drengja voru Jökull og Emil.
Matthildur og Embla voru vinsælustu nöfnin meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 34 stúlkum var gefið nafnið Matthildur og 25 stúlkum nafnið Embla. Næst vinsælustu nöfnin meðal stúlkna voru Salka og Emma.
Hægt er að fletta upp öllum nöfnum og sjá hversu margir heita því nafni í þjóðskrá. Einnig er hægt að sjá yfirlit yfir vinsælustu nöfn nýfæddra barna eftir árum í Þjóðskrárgáttinni.
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð á milli ára má sjá að drengjanafnið Birnir tekur fyrsta sætið af Emil og Jökli. Hástökkvari drengja á topp 10 listanum er Stefán, sem rýkur upp frá 47. sæti í 9.–11. sæti.
Hvað stúlkurnar varðar má sjá að stúlkunafnið Matthildur tekur fyrsta sætið af Aþenu og hækkar sig um 5 sæti frá fyrra ári. Hástökkvari á topp 10 listanum er nafnið Hildur sem stekkur úr 39. sæti í sæti 8-11.
Hvað stúlkurnar varðar má sjá að stúlkunafnið Matthildur tekur fyrsta sætið af Aþenu og hækkar sig um 5 sæti frá fyrra ári. Hástökkvari á topp 10 listanum er nafnið Hildur sem stekkur úr 39. sæti í sæti 8-11.
Algengustu fyrstu eiginnöfnin
Algengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna lítillega breytt á milli ára. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga búsetta hér á landi.
Fjöldatölur miðast við 23. mars 2026.
Fjöldatölur miðast við 23. mars 2026.

Mynd: pixabay
