Trölli.is logo
sdfgsdfg
F.v. Ingimundur Loftsson, Björn Helgi Ingimarsson og Halldór Ingvar Guðmundsson á keppnisstað á Færeyjum, þar sem þeir taka þátt í alþjóðlegu …

Þrír frá Pílufélagi Fjallabyggðar keppa á alþjóðlegu móti í Færeyjum

Smári skrifar — lau - 28. mar. 2026 10:30
Um helgina fer fram eitt stærsta pílumót ársins í Færeyjum þegar Tórshavn Open og Faroe Islands Open verða haldin í íþróttahöllinni við Glasir College í Þórshöfn.
Pílufélag Fjallabyggðar á þar þrjá fulltrúa sem stíga á svið á alþjóðlegum vettvangi. Þeir Björn Helgi Ingimarsson, Halldór Ingvar Guðmundsson og Ingimundur Loftsson kepptu í gær og taka þátt í báðum mótunum sem fram fara um helgina.
Um er að ræða tvö sterk alþjóðleg mót sem bæði eru á styrkleikalista Alþjóðasambands pílukastara, WDF. Faroe Islands Open er í flokki Bronze en Tórshavn Open í flokki Silver, sem sýnir vel þann metnað og gæði sem mótin standa fyrir og hversu sterka keppendur þau laða að sér.
Mótið hófst í gær, föstudaginn 27. mars, með upphitun og para-keppni þar sem leikmenn fengu tækifæri til að koma sér í keppnisgírinn. Í dag, laugardaginn 28. mars, fer fram Faroe Islands Open þar sem keppt er í einliðaleik í þremur flokkum, karla, kvenna og ungmenna. Á sunnudegi tekur svo við Tórshavn Open með sama fyrirkomulagi.
Þrír frá Pílufélagi Fjallabyggðar keppa á alþjóðlegu móti í Færeyjum
Keppnin fer fram í íþróttahöllinni við Glasir College sem hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn helsti vettvangur pílukeppni í Færeyjum. Aðstaðan þar er til fyrirmyndar og vel til þess fallin að taka á móti stórum og krefjandi alþjóðlegum mótum.
Búast má við hörkukeppni alla helgina þar sem bæði reynslumiklir leikmenn og efnilegir pílukastarar etja kappi. Áhugavert verður að sjá hvernig fulltrúum Pílufélags Fjallabyggðar vegnar í þessari sterku keppni.
Trölli.is mun fylgjast grannt með gengi þeirra félaga um helgina og flytja fréttir og myndir frá keppninni.
Myndir; úr einkasafni