Fjölbreyttir heilsueflandi viðburðir fram undan í Fjallabyggð
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mið - 18. mar. 2026 06:35
Stýrihópur um heilsueflandi samfélag hefur lagt til að Fjallabyggð standi fyrir fjölbreyttum heilsueflandi viðburðum á komandi vikum og mánuðum. Tillögurnar voru kynntar á 34. fundi hópsins þann 10. mars.
Meðal annars er lagt til að boðið verði upp á stafagöngu þann 18. apríl í tengslum við hreyfiviku UMFÍ. Þá er einnig fyrirhugaður heilsueflandi dagur laugardaginn 30. maí þar sem óskað verður eftir liðsinni Heilsugæslu HSN. Þar verður meðal annars boðið upp á heilsufarsmælingar og kynningu á öldrunarþjónustu, auk annarrar fræðslu.
Jafnframt er stefnt að samstarfi við aðila á svæðinu um kynningar á íþróttum og tómstundum, meðal annars pílu og skotfimi. Ferðafélagið Trölli hyggst einnig bjóða upp á fjölskyldugöngu í Fossdal í tengslum við viðburðina.
Þá er óskað eftir því að Fjallabyggð hvetji íbúa og fyrirtæki til þátttöku í landsátökum á borð við Mottumars og Hjólað í vinnuna.
Í stýrihópnum sitja Anna Þórisdóttir, fulltrúi ÚÍF, Harpa Hlín Jónsdóttir, fulltrúi heilsugæslu, og María Sölvadóttir, fulltrúi leik- og grunnskóla. Fundinn sátu einnig þær, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sviðsstjóri og Ásdís Sigurðardóttir deildarstjóri.
Mynd: Smári
