Trölli.is logo
sdfgsdfg
Samsett mynd: Fjallabyggð / Þorgeir Bjarnason

NorðurOrg fyllti íþróttahúsið á Ólafsfirði, um 600 gestir mættu þrátt fyrir óveður – Myndir

Smári skrifar — þri - 17. mar. 2026 15:09
Um 600 manns lögðu leið sína í íþróttahúsið á Ólafsfirði föstudaginn 13. mars síðastliðinn þegar söngvakeppnin NorðurOrg fór fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjallabyggð.
Í tilkynningunni segir að íþróttahúsinu hafi verið breytt í sannkallaða tónleikahöll þetta kvöld, þar sem 15 atriði kepptu um sæti í landskeppni Samfés, Samfestingnum. Ljóst hafi verið að verkefni dómnefndarinnar var vandasamt enda hafi öll atriðin staðið sig með mikilli prýði og sýnt fram á þann mikla hæfileika sem ungt fólk á Norðurlandi býr yfir.
Þrátt fyrir snjókomu og snjóflóðahættu mætti fjöldi gesta til að fylgjast með keppninni, sem undirstrikar þann mikla áhuga og stuðning sem viðburðurinn naut í samfélaginu.
Að sögn Fjallabyggðar koma margar hendur að undirbúningi og framkvæmd viðburðar af þessari stærðargráðu. Setja þarf upp svið og hljóðkerfi, útbúa áhorfendasvæði, færa til búnað í íþróttahúsinu og halda utan um skipulagið í heild.
Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja kom að framkvæmdinni og fær sérstakar þakkir í tilkynningunni.
Þar eru meðal annars nefnd starfsmenn HS Kerfis, starfsfólk áhalda- og íþróttahúss, nemendaráð og nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar og félagsmiðstöðvarinnar Neon, Karlakór Fjallabyggðar, Segull, Smárinn, Kjörbúðin, Vélsmiðja Einars, Tjarnarborg og Höllin, auk dómara, skipuleggjenda og starfsfólks félagsmiðstöðva víðs vegar um Norðurland, frá Hvammstanga til Þórshafnar.