Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: úr safni TröllaMynd - trolli.is/KMS

Leiðindaveður og ófærð

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — þri - 17. mar. 2026 09:43
Vetrarfærð er víða á landinu þar sem enn snjóar um mest allt norðanvert landið. Eins er hviðótt á vesturhelmingi landsins, einkum sunnan og suðvestan undir fjöllum, þar sem hviður geta náð allt að 35 m/s. Það á sérstaklega við um svæði eins og Kjalarnes, sunnanvert Snæfellsnes, sunnantil á Vestfjörðum og á Norðvesturlandi. Ekki dregur úr vindi fyrr en seint í kvöld og í nótt.
Vegirnir um Ólafsfjarðarmúla og Almenninga eru lokaðir. Ófært er á Þverárfjalli en snjóþekja eða hálka og skafrenningur er mjög víða.
Winter conditions on roads in Iceland today as there is still snowfall over northern Iceland. Strong winds with gusts up to 35 m/s occur on roads in the western half of the country. Those areas are especially on Kjalarnes, southern Snæfellsnes, Vestfirðir and the northwestern part in general. Decreasing winds late tonight.
Hægt er að fylgjast með færð á umferdin.is