Trölli.is logo
sdfgsdfg
Tjarnargata 18Mynd - trolli.is

Valgeir Sigurðsson áskilur sér rétt til skaðabóta

Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — þri - 17. mar. 2026 11:45
Erindi frá Bjarna Aðalgeirssyni lögmanni, fyrir hönd Síldarleitarinnar sf. sem er í eigu Valgeirs Sigurðssonar, var lögð fram á 912. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar.
Í erindinu kemur fram að Síldarleitin sf. áskilji sér rétt til skaðabóta komi til framkvæmda á hafnarsvæðinu við Tjarnargötu 16 í samræmi við samþykkt skipulag. Um er að ræða lóð þar sem björgunarsveitin Strákar er til húsa.
Bæjarráð bendir á að engar athugasemdir hafi borist í lögbundnu skipulagsferli af hálfu Valgeirs Sigurðssonar, eiganda Tjarnargötu 16. Þá liggi ekki fyrir áform að svo stöddu um uppbyggingu á svæðinu.
Jafnframt kemur fram að umsókn lóðarhafa við Tjarnargötu 18 um stofnun tveggja nýrra lóða hafi verið samþykkt á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar þann 4. mars 2026.
Deiliskipulag hafnarsvæðisins. Sjá kortasjá Fjallabyggðar: HÉR
Mynd: Kortasjá Fjallabyggðar