Rekstrarstyrkur til tónlistarskóla
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — þri - 17. mar. 2026 06:45
Mennta- og barnamálaráðuneyti auglýsir til umsóknar rekstrarstyrki til tónlistarskóla sem bjóða upp á hljóðfæranám á framhaldsstigi eða söngnám á mið- og framhaldsstigi, á árinu 2026. Á undanförnum árum hefur verið skýrt ákall frá tónlistarskólum sem kennt hafa söngnám á mið- og framhaldsstigi og hljóðfæranám á miðstigi um aukið fjármagn vegna síversnandi rekstrarstöðu.
Markmið styrkjanna er að styðja við hljóðfæra- og söngnám nemenda og efla framboð. Til ráðstöfunar eru eftirstöðvar af 290 m.kr. framlagi úr fjáraukalögum IV. 2025 alls 151 m.kr. sem mun skiptast niður eftir heildarfjölda nemenda þeirra skóla sem sækja um styrk og uppfylla fyrrgreint skilyrði.
Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirkomulag og aðstöðu til kennslu, faglega getu og fjárhagslega stöðu, ásamt fjölda nemenda á hverju stigi.
Umsóknir skulu sendar til mennta- og barnamálaráðuneytisins á mrn@mrn.is í síðasta lagi 7. apríl 2026.
Mynd: aðsend
