Trölli.is logo
sdfgsdfg
Unglingameistarmót í badminton 1969 og 1970

Gamlar myndir – Unglingameistaramót 1969 og 70

Jón Ólafur Björgvinsson skrifar — sun - 29. mar. 2026 13:55
Upprunalega bárust pistlahöfundi þessar skemmtilegu badminton minninga myndir gegnum Messenger spjall í lok janúar:
Sæll og gott nýtt ár , var að skoða gamlar myndir hjá pabba, og fann gamlar myndir frá badminton móti, var bara að hugsa hvort þú vildir gera eitthvað með þær , þú ert svo flinkur að skrifa um margt frá Sigló. 👏👏🥰 Kveðja, Sigrun Johannsdottir.
Hér er yfirlit yfir myndirnar sem voru teknar á tveimur Badminton Unglingameistramótum 1969 og 1970, þær birtast ykkur hver og ein og endurunnar í myndaalbúmum hér neðar í greininni.
Sjá meira hér af myndum og frásögnum um Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar, TBS:

Sigrún fann þessar myndir þegar hún var í sínu sorgarferli að skoða gamlar myndir úr dánarbúi föður síns, Jóhanns J Halldórssonar, en hann lést 23 desember 2025. Hann var yndislegur maður, sem flestir Siglfirðingar þekkja best sem “Hanni Kokkur“.
Ein gömul: “Það var lambasteik með tilheyrandi,.. ” gæti Hanni kokkur verið að segja við Venna gamla. Á myndinni eru. Stefnir Guðlaugsson, Vernharður Karlsson og Jóhann J Halldórsson. Myndin er tekin á Hafnarbryggjunni í júnímánuði 1972. Ljósmyndari: Steingrímur Kristinsson.
Það litla sem við vitum um þessar myndir, er að þær berast heim í hús hjá Hanna og fjölskyldu, gegnum Ásgeir Gunnarsson, en hann var afi Sigrúnar í móðurætt. Ljósmyndarinn sjálfur er óþekktur en Ásgeir gæti sjálfur verið myndasmiðurinn á bak við nokkrar af þeim.
Við skulum hafa í huga að þetta eru “myndir af myndum,” sem eru 56-57 ára gamlar og greinilega teknar af ágætis áhugamanna ljósmyndar og líklega framkallaðar í heimahúsi ljósmyndarans óþekkta.
Við stafræna endurvinnslu hefur undirritaður forðast að laga þær of mikið og sést t.d. á nokkrum myndum að þær hafa verið undir plastfilmu í myndaalbúminu og plastið hefur skilið eftir sig rendur á nokkrum myndum.
Myndirnar eru börn síns ljósmynda tækni tíma og það mikilvæga er ekki endilega gæðin, heldur meira minningarnar sem birtast okkur í myndunum, hártíska og klæðaburður úr horfnum tíma. Stoltar stelpur og strákar, stilla sér upp fyrir myndatöku með badminton verðlaunapeninga o.fl.
Hópmynd 1: Líklega tekin í Reykjavík 1970. Ljósmyndari óþekktur.
Á myndunum sjáum við nokkra núlifandi og látna Siglfirðinga, en einnig krakka og fullorðna stjórnar karla/dómara, frá hinum og þessum badminton félögum Íslands. Undirritaður treystir sér ekki í að nafngreina fólkið eða aðgreina, hvaða myndir eru teknar 1969 eða 1970, en mér eldra fólk getur eflaust þekkt sjálfan sig og aðra og líklega lesið ýmislegt varðandi staðsetningu úr bakgrunninum á myndunum.
Það væri samt gaman að fá nöfn og upplýsingar frá lesendum og þá getur undirritaður uppfært greinina seinna. Auðveldast er þá að styðjast við titil og númer á myndum og senda upplýsingarnar til: trolli@trolli.is.

Stelpur

ATH. Smelltu á mynd og hún birtist þér stærri. Þar á eftir getur þú einnig flett fram og til baka gegnum allar myndirnar.
4 stelpur , mynd 1. Guðrún Ólöf Pálsdóttir ( Gunnóla) Margrét Steingrímsdóttir, ?? og ??.
Stelpur, mynd 2.
Stelpur, mynd 3.
Hópmynd 2. Guðmundur Blöndal, Þórdís Ingimars, Stella Matt og Gunnlaugur Vigfússon (Gulli Sínu.)

Strákar

Strákar, mynd 1: Guðmundur Blöndal, Sigurgeir Erlendsson, Óttar Bjarnason, Gunnlaugur Vigfússon. (Gulli Sínu)
Strákar, mynd 2.
Strákar, mynd 3.
Strákar, mynd 4.
Strákar, mynd 5.
Strákar, mynd 6. Gunnar Blöndal og Ingólfur Jónsson.
Strákar, mynd 7.

Stjórnar karlar og dómarar

Hópmynd 3. Karlar.
Hópmynd 4. Karlar. Frá vinstri: Sigurjón Erlendsson, Jóhannes Egilsson (Hansi), ??, ??, ??, Björn Helgason og ??.

Að lokum…

Tvö eintök af sömu mynd… smá framköllunarmistök. Það kom stundum fyrir að filmu ramminn snéri vitlaust í ljósmynda stækkaranum, í myrkraherbergi áhugaljósmyndarans og þá varð myndin á pappírskópíunni spegilvend, en sá sem tók myndina veit best hvor þeirra snýr rétt!
Badminton strákur. Mynd 1. Þórður Björnsson.
Mynd 2.

Undirritaður vill að lokum senda innilegar þakklætiskveðjur til Sigrúnar og eftirlifandi afkomenda Jóhanns J Halldórssonar, fyrir að leyfa okkur að sjá þessar myndir. Það er oft merkileg og sterk upplifun sem fylgir því að sjá horfin hversdagsleika og gamla vini, í gömlum svarthvítum ljósmyndum.

Höfundur samantektar og
stafræn gæða endurvinnsla ljósmynda:
Jón Ólafur Björgvinsson .

Sjá meira söguefni eftir sama höfund hér:
https://trolli.is/author/nonni/
Forsíðu ljósmynd:
Ljósmyndari: Sigrún Jóhannsdóttir.
Allar ljósmyndir eru birtar með leyfi frá eigendum og Ljósmyndasafni Siglufjarðar.