Gildran heldur stórtónleika í Hofi – í tilefni 40 ára afmælis hljómsveitarinnar
Gunnar Smári Helgason skrifar — sun - 15. mar. 2026 10:05
Hin magnaða og margrómaða hljómsveit Gildran heldur stórtónleika í Hofi Akureyri laugardaginn 21. mars næstkomandi í tilefni af 40 ára afmæli sveitarinnar.
Á tónleikunum ætla þeir félagar að fara yfir ferilinn og flytja mörg þekktustu lög sín, meðal annars „Mærin“, „Andvökunætur“ og „Vorkvöld í Reykjavík“, auk annarra slagara sem hafa fylgt sveitinni í gegnum árin.
Margir sem þekkja til segja að Gildran hafi sjaldan verið betri en nú, og að tónleikar sveitarinnar séu einstök upplifun fyrir tónlistarunnendur.
