Hvetja Fjallabyggð til að huga að húsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara
Kristín Magnea Sigurjónsdóttir skrifar — mán - 16. mar. 2026 12:39
Áherslur Landssambands eldri borgara í komandi sveitarstjórnarkosningum voru lagðar fram á 10. fundi öldungaráðs Fjallabyggðar.
Í umræðum ráðsins kom jafnframt fram ábending um mikilvægi þess að huga að húsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara á Siglufirði. Öldungaráð hvetur sveitarstjórn Fjallabyggðar til að taka það mál til skoðunar.
Nefndarmenn öldungaráðs Fjallabyggðar eru, Sæbjörg Ágústsdóttir varaformaður, Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara, Þorbjörn Sigurðsson fulltrúi eldri borgara og Elín Arnardóttir fulltrúi heilsugæslu. Varamenn í ráðinu eru Katrín Freysdóttir, Pálína Pálsdóttir og Brynhildur Bjarkadóttir.
