Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: Skjáskot af korti af vef Rarik

Prófanir valda rafmagnsleysi í Siglufirði og nágrenni

Smári skrifar — mið - 18. mar. 2026 12:05
Rafmagn verður tekið af í Siglufirði og nágrenni frá kl. 0:01 til kl. 1:00 þann 20. mars 2026 vegna prófana í aðveitustöð.
Um er að ræða fyrirhugaða framkvæmd þar sem unnið verður að prófunum í aðveitustöð.
Bent er á að rafmagn gæti komið á í stuttan tíma á meðan á framkvæmd stendur, þar sem prófanirnar geta valdið tímabundnum sveiflum á afhendingu.
Nánari upplýsingar og kort af því svæði sem verður fyrir áhrifum má finna á vef Rarik.
Mynd: Skjáskot af korti af vef Rarik