Vanur og óvanur leiða saman hesta sína á pílumóti
Smári skrifar — mið - 18. mar. 2026 11:39
Pílufélag Fjallabyggðar stendur fyrir opnu pílumóti á morgun, fimmtudaginn 19. mars, þar sem áhersla er lögð á að blanda saman reynslu og nýliðum í skemmtilegri keppni.
Um er að ræða tvímenning þar sem einn vanur og einn óvanur mynda lið. Dregið verður í lið eftir skráningu, sem þýðir að mótið er opið öllum, óháð reynslu. Þetta fyrirkomulag hefur notið vinsælda þar sem það skapar bæði jafnræði og góða stemningu.
Húsið opnar klukkan 19:00 og hefst spilamennska hálftíma síðar, klukkan 19:30. Þátttökugjald er 2.000 krónur á mann og að venju verða veitt forsetaverðlaun til sigurvegara.
Pílufélag Fjallabyggðar er með aðstöðu á efstu hæðinni hjá Ísfelli í Ólafsfirði og fer mótið fram þar.
Í tilkynningu frá félaginu er hvatt til þátttöku og lögð áhersla á að mótið sé ætlað öllum sem vilja taka þátt í léttu og skemmtilegu pílukvöldi.
Mynd: Pílufélag Fjallabyggðar
