Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: Skíðafélag Ólafsfjarðar

Skíðagöngubraut troðin við Ólafsfjarðarvatn – Tindaöxl og Bárubraut lokuð í dag

Smári skrifar — lau - 14. mar. 2026 11:04
Skíðasvæðið í Tindaöxl verður lokað í dag og sama gildir um Bárubraut. Þess í stað verður skíðagöngubraut troðin við Ólafsfjarðarvatn síðar í dag fyrir þá sem vilja nýta góð snjóskilyrði á svæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar. Þar segir að mikil snjókoma hafi verið í firðinum undanfarna daga og að nú sé í gildi fjórða stigs hættustig vegna snjóflóðahættu á Tröllaskaga. Snjóflóð hafi fallið bæði í gær og í dag og því hafi verið ákveðið að loka bæði Tindaöxl og Bárubraut í dag af öryggisástæðum.
Þrátt fyrir það verða skíðagöngumenn ekki alveg án aðstöðu. Fyrirhugað er að troða skíðagöngubraut við Ólafsfjarðarvatn um klukkan 12 í dag. Brautin verður lögð við vatnið, á flæðunum og út á eyrina þar sem aðstæður eru taldar hagstæðari.