Trölli.is logo
sdfgsdfg
Mynd: Ingvar Erlingsson

Stórbrotnar myndir Ingvars Erlingssonar ljósmyndara af snjóflóðinu sem féll yfir veginn

Smári skrifar — lau - 14. mar. 2026 17:32
Eins og áður hefur komið fram féll umfangsmikið snjóflóð yfir Siglufjarðarveg skammt utan við Siglufjörð, en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær flóðið féll.  Flóðið fór alla leið niður í fjöru og lokaði veginum þar sem það féll.
Snjóflóðið féll úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki, á svæðinu milli Strákaganga og Siglufjarðar. Samkvæmt upplýsingum af vettvangi er flóðið marga metra á þykkt og allt að um 200 metra breitt þar sem það fór yfir veginn. Krafturinn í flóðinu var mikill og tók það meðal annars niður nokkra ljósastaura sem stóðu meðfram veginum.
Siglufjarðarvegur hafði þegar verið lokaður vegna snjóflóðahættu þegar flóðið féll og var því engin umferð á svæðinu á þeim tíma.
Með fréttinni fylgja símamyndir sem sýna vel umfang snjóflóðsins og aðstæður á vettvangi. Myndirnar tók Ingvar Erlingsson, ljósmyndari og björgunarsveitarmaður, og eru þær birtar hér með góðfúslegu leyfi hans. Á myndunum má sjá hversu víðáttumikið flóðið er, bæði þar sem það hefur farið yfir veginn og einnig niður í átt að sjó.
Snjóflóðahætta hefur verið töluverð á Tröllaskaga síðustu daga eftir mikla snjókomu og óstöðug veðurskilyrði.